Varúð til allra

Þegar ég brá mér í 10-11 sem er opinn frá 23:59 til 23:59 á hverjum degi rak ég augun í dall þar sem voru dvd myndir á 299kr sem hægt er að leigja og þarf aldrei að skila. Virkar bara í 48 tíma. en samt er eitt slagorðið á þeim "horfðu þegar þér hentar" Jæja hvað um það ég gramsaði smá stund í honum og fann mér mynd til setja í fína heimabíó græjurnar mínar og horft á í nýja flatskjá sjónvarpinu mínu. Myndin heitir Sky Captain and the world of tomorrow Skartar alveg fanta flottum leikurum Jude Law, Gwyneth Paltrow og frú brad pitt. Þvílka dellu hef ég aldrei á æfi minni séð. En þetta á að vera einhversskonar vísindaskáldsaga sem á að gerast fyrir seinni heimstyrjöldina. Ég veit ekki hvaða síru truflaði einstaklingur gat samið alla þessa vitleysu og því síður hvernig í óskpunum honum tókst ð fá peninga til að framleiða þessa vitleysu. Það er hinsvegar ráð til allra að taka ekki þessa mynd nema þú sért sjálfur á sýrutrippi

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband