Varð að deila þessum

Dag einn fór maður nokkur út í garðinn sinn og sá að það var górilla uppi
í einu af trjánum hans.
Hann stökk strax inn aftur og hringdi í
dýragarðinn. Dýragarðsmenn lofuðu að senda strax górillusérfræðing á
staðinn.  Stuttu seinna kom maður á staðinn á gömlum pallbíl. Hann kom út með stórt
prik, handjárn og haglabyssu. Á eftir honum kom mjög illilegur hundur.
"Hvað á þetta nú að þýða?" spurði húseigandinn.
"Ert þú ekki sá sem er með górillu uppi í tré?" var svarið.
"Jú, en til hvers er allt þetta dót?"
"Sko... Ég klifra upp í tréð með þetta prik. Ég pota því í apann þangað
til hann dettur niður úr trénu. Þegar hann gerir það stekkur hundurinn til
og bítur hann í eistun. Þegar apinn krossleggur handleggina til að verja
sig, þá setur þú handjárnin á hann og þar með höfum við náð í górillu."
"Allt í lagi, en til hvers er haglabyssan?"
"Já, sko... hún er til staðar ef ég dett úr trénu fyrst. SKJÓTTU ÞÁ HELVÍTIS HUNDINN ! !"

Gamli skólinn gengur ekki lengur

Björn Bjarnason er af hinum  svokallaða gamla skóla og hefur staðnað. Hann virðist samt ekki gera sér grein fyrir því að tímarnir hafa breyst Hann virðist vera búinn að koma ár sinni vel fyrir borð  því hann virðist hafa stuðning alstaðar nema hjá kjósendum. Ég ber minnst traust til Björns af þeim þingmönnum og ráðherrum sem við völd eru í dag


mbl.is Hreinn: Dómur kjósenda um verk Björns liggur fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slátrum mjólkurkúnni

Það er kannski gróft að seigja að flugvöllurinn sé besta mjólkurkú Reykjavíkur En hann er nauðsynlegur. Eins og allir vita höfum við reykjavíkurflugvöll og svo keflavík Það hefur verið talað um að ef byggja á nýjan flugvöll muni það kosta 3-4 miljarða ef ekki meira. Það eru peningar sem frekar ætti að nota til að bæta þjónustu við aldraða og öryrkja. En fari svo að flugvöllurinn verði látin fara (þá á að sjálfsögðu að leifa allri landsbggðinni að kjósa um það) á ekki að flytja hann neitt annað en til Keflavíkur Þar er flugvöllur sem getur annað innanlandsfluginu líka
mbl.is Flugvöllurinn á góðum stað en á dýrmætu byggingarlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að fara svona með eiginkonuna???

Nei ég bara spyr fyrst hans heitelskaða deir við að borða rusl af götunum. Svo er ég að velta fyrir mér hvort þau hafi eignast einhver afkvæmi saman því þá er um að gera fyrir heimsbyggðina að safna svo þau geti átt gott líf framundan þrátt fyrir móðurmissin

hehehehehehehehehehehe


mbl.is Geitabrúðurin öll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðkönnun á Leigubílum

 

Mér datt í hug að gera verðkönnun  á leigubílum Nú er næstum ár liðið síðan verðlagning var gefin frjáls á leigubílum og því væri gaman að sjá hver þróun á verði væri.

Hringt var í BSR, BBS, NL(nýju leigubílastöðina) og svo Aðalbíla BSH. Upplýsingar vegna Hreyfils voru teknar af heimasíðu þeirra http://www.hreyfill.is/

 

Hreyfill       Startgjald  490kr  Km gjald 107       Biðgjald án startgjalds 3871 kr/klst

BSR            Startgjald 450kr  Km gjald  114       Biðgjald án startgjalds 4048 kr/klst

Aðalb.-bsh  Startgjald 490kr  Km gjald  110,5    Biðgjald án startgjalds 3959,5kr/klst

 

Á borgarbílastöðinni (BBS) var svarað en konan sem þar svaraði gat ekki sagt mér hvert startgjald né km gjald væri Hún hefði ekki upplýsingar um það.

 Á NL var svarað eftir langan tíma og strákurinn sem þar svaraði sagðist nýbyrjaður að keyra og hann vissi að startgjald væri 490kr  en hann vissi ekki aðrar tölur Aðalbílar-bsh gaf mér þær upplýsingar að km gjald væri nákvæmlega mitt á milli Hreyfils og BSR og tímagjaldið einnig.

 

Með þessar tölur reiknaði ég út nokkrar ferðir

2 km ferð með 2 mín bið

BSR......................... 812,93kr

Hreyfill......................833,03kr

Aðalbílar-Bsh...............842,98

Munur á hæsta og lægsta verði 3,56%

 

5 km ferð með 3 mín biðtíma

BSR............................1222,40

Hreyfill........................1218,55

Aðalbílar-BSH...............1240,48

Munur á  hæsta og lægsta verði  1,77%

 

7 km ferð með 5 mín biðtíma

BSR............................1585,33

Hreyfill........................1561,58

Aðalbílar-BSH...............1593,46

Munur á  hæsta og lægsta verði  2,0%

 

50 km ferð með 5 mín biðtíma sem er ca Reykjavík og í flugstöð

BSR............................6487,33

Hreyfill........................6162,58

Aðalbílar-BSH...............6344,96

Munur á  hæsta og lægsta verði  5,01%

 

Niðurstaðan er sú BSR er ódýrastir í styttriferðum en Hreyfill í þeim lengri

Í þessari könnun minni kanna ég ekki gæði þjónustunnar. Þetta er eingöngu verðkönnun og fengnar voru upplýsingar um dagtaxta sem gildir virka daga milli kl 08:00 til 17:00

Kveðja


Hraðatakmarkara í alla bíla

Ég held að það hafi marg sýnt sig að setja þarfraðatakmarkara í alla bíla til að stemma stigu við ofsaakstri. Þeta er til þess að gera einfalt í framkvæmd. Frá einhverri dagsetningu td. um áramót eiga allir bílar sem skráðir eru í landið að vera með hraðatakmarkar Þeir bílar sem eru skráðir fyrir verða dæmdir til þess að setja´hraðatakmarkara í bílinn verði hann tekin fyrir hraðakstur Lög og reglur virðast ekki duga í þessu tilfelli
mbl.is Aftur í ökuprófið vegna ofsaaksturs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkur brandari

Það held ég að verkalíðsforkólfar séu algerlega siðlausir. á morgun rennur upp sá dagur þegar þeir draga fjöldan með sér í kröfugöngu og þema morgundagsins er að útríma fátækt á Íslandi.

Hefur það ekki verið þeir sem hafa haft völdin þar í kjaraviðræðum? Þeir hafa samið um örfá prósent meðan aðrar stéttir semja um tugi of á hærri krónutölu?  Það er ekki eins og þessir forkólfar þurfi að lifa á þeim launum sem þeir eru að semja um fyrir aðra og ég get ekki lagt fram þá tillögu annarstaðar en hér að verkalíðsforingjar hafi lægsta taxta sem þeir semja um fyrir aðra í eigin mánaðarlaun Þá fyrst getum við útrímt fátækt


mbl.is Krafan 1. maí að fátækt verði útrýmt á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið besta mál

Reglur eru reglur og það er búið að liggja lengi fyrir hvenær ætti að skila inn framboðslistum. Auk þess sem að fari svo ólíklega að þessi baráttu samtök næðu inn manni myndu þau aldrei gera neitt annað en að vera í stjórnarandstöðu og engin áhrif hafa. Hið góða við það að leifa þeim að vera með er að þá verður sjálfstæðisflokkurinn sterkari


mbl.is Framboðslistum Baráttusamtakanna hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fröken Elísabet

 

Fyrir ekki svo mörgum árum var stofnað nýtt tryggingafélag sem fékk nafnið Elísabet. Hvaðan þessi nafngift kemur hef ég ekki hugmynd um. En megin markmiðið hjá þessu nýja tryggingafélagi er að bjóða lægri tryggingar á bifreiðum. Við getum öll klappað fyrir þessu nýja tryggingafélagi sem bíður tryggingar 32% (Samkvæmt eigin auglýsingu) lægra verði en stóru ljótu tryggingafélögin Sjóvá Vís og TM. Enn það sem vekur upp spurningar hjá mér er Fyrst  Elísabet býður 32%  lægra verð og er væntanlega ekki að tapa á þeim viðskiptum

Er þá TM sem er eigandi Elísabetar að okra á bíleigendum um 32%??????????

Hversvegna lækkaði TM tryggingarnar hjá sér ekki frekar um 32% heldur en að stofna nýtt tryggingafélag


Fólk er fífl

Þetta sagði maður sem ég hef tekið í guðatölu Hann var forstjóri eins olíufélags. Mér finnst svo oft að Við Neytendur erum svo oft tekin í ósmurt og allir brosa og láta sér vel líka. Því ætla ég að koma hér með hreinskilnigsleg álit mitt á hvernig fyrirtæki stór og smá  níðast á okkur neytendum fram og til baka og við yftum bara öxlum og bítum á jaxinn í stað þess að standa saman og veit þessum fyrir tækjum aðhald

  

Ég vonast til þess að þessi bloggvefur verði víðlesinn svo látið slóðina ganga 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband